37 vikur – og tíminn líður ágætlega hratt
18 feb.
Já, ég get alveg viðurkennt það að tíminn er ekkert orðinn fáránlega lengi að líða. -ennþá- Enda er ég ekki farin að bíða það mikið. Geri mér alveg grein fyrir því að það er kannski ekki alveg tími til kominn. Spennan er samt alltaf að aukast og ég finn það sérstaklega hjá Helga. Hann er kannski ekki orðinn óþolinmóður, en honum er alveg farið að langa að fá bara barnið í hendurnar og hætta að strjúka bara utan á bumbunni
hehe
Annars er pabbi kominn heim og hann tilkynnti mér það að það væri ekki í boði fyrir barnið að vera lengur en til 10. mars þarna inni. Hann verður heima þangað til alla vega, en svo er bara spurning hvenær skipið landar, hvenær hann verður kallaður út aftur. Ég vil helst ekki að hann missi af þessu, en ég fæ örugglega litlu sem engu ráðið um það.
Heilsan er annars að öllu leyti ennþá rosa fín. Er reyndar farin að vakna með pínu bjúg á tánum og búin að taka giftingarhringinn af mér, svona áður en það verður of seint og það þurfi að klippa hann af. En ég verð bara að vera dugleg að henda löppunum upp í loft. Finnst það bara ansi óþæginlegt. Ég sef ennþá ágætlega á næturnar þó svo að pissuferðirnar séu orðnar fleiri en þær voru. Ég er reyndar dugleg að drekka vatn svona seinnipartinn, svo það er ekkert skrítið að þær ferðir aukist yfir nóttina.
Svo er ég bara ennþá í meðgöngusundinu og finnst það algjör snilld. Ég gerði heiðarlega tilraun á mánudaginn og labbaði í sundið. Það var ógeðslegt færi, slabb og bleyta og nánast ekkert búið að moka. Svo það var ógeðslega erfitt að labba og ég gjörsamlega keyrði mig út. En ég tók því bara rólega á þriðjudaginn og vann þreytuna niður.
Helgi fór svo suður um síðustu helgi og kom heim með slatta af barnafötum. Keypti svona sittlítið af hverju fyrir bæði kyn og ég er bara mjög stolt af honum. Það eru ekki allir sem hefðu farið í þetta. En hann vill nú samt ekki viðurkenna það að honum hafi fundist þetta gaman. Sá það samt alveg á honum að hann hafði lúmskt gaman af þessu öllu saman. Bara krúttlegt
Áður en ég hætti vil ég óska elsku Helgu Kristínu minni til hamingju með 25 ára afmælið í dag! :*
Ég tek svo nýjar bumbumyndir í kvöld og skelli inn
Held þetta sé orðið gott í bili.
Mig langar svo að sjá ykkur kvitta, þið eruð ekki að standa ykkur í stykkinu gott fólk
heh

Nýlegar athugasemdir