Hvurslags leti er í mannskapnum?
Sama leti og í mér sennilega, sit eins og endranær í vinnunni, algerlega snjóuð inni. Tók sveitastelpuna á'etta í morgun þegar ég var að grafa bílinn út úr skaflinum á planinu heima. Öskraði og urraði af eldmóð, settist svo upp í bílinn, setti í bakk, lokaði augunum og geystist af stað út af stæðinu. Sem betur fer urðu öngvir bílar fyrir mér. Hver segir að litlar, ljóshærðar, kasóléttar stelpur á sokkabuxunum geti ekki keyrt í þessu aftakaveðri. Þar sem við erum jú flest alin upp norðan heiða þá kallast þetta nú kannski ekki mikið. En magnað hvað borgarbúarnir geta nú vælt
Annars gengur allt vel hjá mér, datt í hug að skella inn smá fréttaskoti af mér og erfingja 4A. Bumban stækkar og stækkar, bara rétt rúmur mánuður eftir í fyrirliðann! Hvernig væri nú krakkar að taka sig saman í andlitinu og reyna að stofna fótboltalið. Við erum nú þegar komin með tvo leikmenn. Hver er næstur?
Annars er maður farinn að huga að því að hætta í vinnunni, tími til kominn, alveg að gera mig gráhærða. Nú er ég á fullu spani að finna mér eitthvað til dundurs þessar 2-3 vikur sem ég ætla að vera heima fyrir áætlaðan dag
Allar hugmyndir og heimsóknir vel þegnar
Hvernig væri svo að fá að heyra aðeins frá henni Hrönnsu pönnsu? Hún skellir hér inn þessum mögnuðu fréttum og lætur svo ekkert í sér heyra? Annars bara almennt langar mig að vita hvað þið eruð að brasa, alger óþarfi að segja upp áskriftinni að bekkjarfélugunum, við höfðum það nú alveg ágætt er það ekki
Skelli hér inn í lokin mynd af bumbunni, hvar eru tærnar á mér???? Fleiri fréttir á www.fjolan.bloggar.is en mér finnst alveg þess virði að reyna að halda þessari síðu á lofti
Verið dugleg að kommenta og blogga!