Flokkur | Árið 2009 RSS veita fyrir þennan flokk

Árið 2009 í grófum dráttum

9 jan.

Janúar – Síðast önnin hjá mér byrjaði í skólanum og við Helgi vorum að undirbúa flutning til Reykjavíkur. Þetta gekk allt rosa vel fyrir sig og tók stuttan tíma að finna íbúð í RVK, finna leigjendur fyrir okkar íbúð á AK og græja þetta allt saman. Janúar fór nánast bara í þetta. Elsa systir átti afmæli þann 27. eins og öll hin árin ;)

Febrúar – Við fluttum suður og komum okkur ágætlega fyrir í kósý íbúð á Álftanesinu. Það var frekar langt fyrir okkur að fara í vinnu, en stutt fyrir mig í skólann svo það var einhver málamiðlun. Ekki skemmdi svo fyrir að við vorum bæði að vinna í vesturbænum, svo þetta voru engar krókaleiðir sem þurfti að fara, en þó slatta vegalengd.
Við stelpurnar í skólanum stofnuðum hljómsveitina Struggling Lovers og tókum þátt í undankeppni Iðnskólans fyrir Söngkeppni FF. Við lönduðum þriðja sæti og geri aðrir betur segi ég nú bara. Þetta var algjör snilld og ég er ekki frá því nema ég sakni vitleysinganna :D hehe.
Hápunkturinn í febrúar var sennilega sá að ég greiddi Jóhönnu Guðrúnu á úrslitakvöldinu fyrir Eurovision þegar hún vann með laginu Is It True. Ég hef bara sjaldan verið jafn stolt af sjálfri mér eins og ég var það kvöld.

Mars – Þá tók ég þátt í InterCoiffure Junior hárgreiðslukeppninni. Þar voru 8 keppendur og þar af 5 frá Akureyri. Ekki slæmt það. Ég var bara nokkuð sátt með mína frammistöðu og alltaf gaman að taka þátt og læra og sjá eitthvað nýtt. Margt flott að gerast og fullt af flottu hárgreiðslufólki að gera flotta hluti. Mamma átti afmæli 10. Mars og var svo sem ekkert haldið uppá það neitt sérstaklega.

Apríl – Páskarnir gengu í garð og það var bara ágætt að gera í fermingargreiðslum í vinnuni. Daníel bróðir fermdist líka og var það allt saman yndislegur dagur. Hann rosa ánægður með daginn fékk að sjálfsögðu fullt af gjöfum. Pabbi átti afmæli 10. Apríl og var heldur ekki mikið haldið uppá það. Elsa systir kom heim í ferminguna hans Daníels og kom Silje vinkona hennar með henni. Ég hitti þær voða lítið en það stutta sem við náðum að hittast var frábær tími. Alltaf gaman að hafa Elsu systir á landinu ;)

Maí – Önnin í skólanum að verða búin að líða fór að sveinsprófsundirbúningi. Mér gekk rosa vel í prófunum og fékk að taka sveinsprófið þann 16. Maí. Ég fékk 4 daga fyrirvara um að ég mætti taka prófið í maí, með mínum útskriftarhóp svo ég tel það ansi gott að hafa náð að redda öllum módelum og öllu með svo stuttum fyrirvara. Ég útskrifaðist svo úr Iðnskólanum með hæstu einkunn þann 21. Maí. Kom mér frekar mikið á óvart, en ofboðslega var ég stolt af sjálfri mér. Þetta var klárlega einn af hápunktum ársins.
Eftr útkskrift tók svo við full vinna á Salon Reykjavík og klára samninginn minn.

Júní – Helgi minn átti afmæli þann 12. Og náði 26. Aldursári. Uppá það var haldið með smá út að borða, ekkert of fínt samt. Svo fórum Við Helgi í sumarfrí 15. Júní í 2 vikur. Það var rosalega kærkomið því mikið hafði verið að gera hjá okkur báðum. Við fengum tjaldvagninn hjá mömmu og pabba lánaðann og keyrðum suður fyrir landið og stoppuðum hér og þar. Keyrðum svo Austfirðina og enduðum á Akureyri og vorum þar þangað til fríið var búið. Þetta var snilldar frí og yndislegur tími sem við áttum saman.

Júlí – Var vinnumánuður sumarsins. Við tók fullur vinnumánuður og hann var hryllilega lengi að líða. Ekki svo mikið var að gera í vinnuni, ofboðslegur hiti og fólk að njóta veðursins, en ekki að hanga í klippingu. 7. Júlí áttum við hjónin 2ja ára brúðkaupsafmæli og héldum við uppá það með því að fara á Hlöllabáta í rómantískann hádegismat. Hehe ;) Svo var smá hittingur hjá sistkynum mömmu í sveitinn hjá Nonna frænda. Það var algjör snilldar helgi og Helga frænka og Josef komu frá útlöndunum og tilkynntu um trúlofun.
Ég átti afmæli, 24. ára skvísan og var það bara ágætis afmælisdagur. Daníel bróðir átti svo afmæli 26. júlí og varð árinu eldri ;)
Um miðjan mánuð komumst við svo að því að nýr fjölskyldumeðlimur væri væntanlegur. Einóm gleði ríkti og erfitt var að halda kjafti yfir spennandi fréttum og halda andliti, þar sem þreyta var áberandi og mikið ljótutímabil í gangi. Þessar fréttir voru einn af hápunktum ársins.

Ágúst – Um verslunarmannahelgina fórum við vestur á Ísafjörð og vorum hjá afa og ömmu Helga. Kíktum á Mýraboltann og höfðum það notalegt. Þvílíkt dekur sem var hjá ömmunni og afanum. Svo keyrðum við norður til Akureyrar og vorum þar þangað til sumarfríið var búið. Þegar suður var komið aftur, tók bara við vinna og kósýheit. Mér fannst frekar skrítið að enginn skóli væri að byrja hjá mér, en fannst það líka bara mjög fínt.

September – Fórum við í fyrstu mæðraskoðunina okkar og fyrsta sónarinn. Yndislegt var að fá að vita að allt væri í góðu með púkann og maður mátti byrja að segja frá. Ég var öll að koma til og sem betur fer komst ég yfir ljótuna eftir því sem leið á mánuðinn. Ég tók við sveinsbréfinu mínu og við Helgi héldum uppá það með því að fara út að borða á Argentínu Steikhús og svo á Hellisbúann í leikhús. Snilldar matur og snilldar sýning. Elsa systir kom heim til landsins og var í slatta tíma. Enda voru 2 landsleikir hjá Krissa svo hún kom með honum og fóru þau saman út aftur. Yndislegt að hafa þau öll.

Október – Helgi var farinn að þurfa að fara oftar norður til AK að sinna vefþættinum hans og Helga Steinars. Það þýddi að ég var ansi mikð ein heima og öfundsjúk yfir tíðum ferðum hans norður. Ég komst þó eitthvað með honum. Ég byrjaði að blogga meira og hugsa aðeins betur um síðuna eftir pínu pásu. Loksins var komin lögleg bumba svo hægt var að byrja að taka bumbumyndir.

Nóvember – Það styttist óðum í flutninga og ég var byrjuð að skipuleggja að pakka niður og svona. Nóvember var rosalega fljótur að líða og áður en ég vissi af var mánuðurinn búinn og desember byrjaður.

Desember – Var frekar strembinn, enda jólatörnin að byrja í vinnuni, pakka niður búslóðinni, þrífa íbúðina og flytja. Við fluttum 18. Desember allt dótið norður og Helgi fór með í þeirri ferð. Ég var í RVK til 23. Desember og flaug þá norður. Ég er búin að blogga um desember svo ekki þarf ég að lista betur hvað gerðist þann mánuðinn ;)

En takk fyrir skemmtilegt ár 2009, megi 2010 vera enn skemmtilegra.