Sarpur

4 dagar í settan dag

8 mars

Eiginlega bara 3 því þetta er skrifað svo seint.

Annars er heilsan bara rosa fín en ég er ansi snögg að verða pirruð og láta asnalega hluti fara í taugarnar á mér. Langar rosalega að fá krílið í hendurnar. En ég er að fara í svæðanudd á morgun. Orðið á götunni er að það eigi að hjálpa manni rosalega, bæði getur komið manni af stað og á að undirbúa og mykja mann fyrir fæðinguna. Ég vona að Anna Svava geri kraftaverk ;) Hef enga trú á öðru ;)

Á miðvikudaginn förum við svo í 40. vikna skoðun, þó svo að það séu ekki sléttar 40. vikur fyrr en á fimmtudag. Fyrir mér eru þessir dagar aukaatriði og ég tel þá yfirleitt ekki. Nema núna, þá tel ég niður ;) Það verður forvitnilegt eftir nuddið hvort eitthvað gerist og hvort ég þurfi að fara í skoðunina á miðvikudag.

En um síðustu nótt fékk ég mestu fyrirvaraverki sem ég hef fengið hingað til. Miðað við þá, þá hef ég ekki verið að fá neina verki, eins og ég hef verið að halda fram. Þeir stóðu yfir í 3 tíma, en mjög óreglulegir og ekkert svakalega slæmir. Helgi vaknaði eftir smá tíma og varð frekar spenntur, en við sofnuðum svo bæði á endanum. Þetta þarf svo sem ekki að þýða neitt. Margar konur hafa verið að finna fyrirvaraverki mörgum vikum áður en þær eiga. En ég vona að þetta sé bara að fara að byrja hjá mér. Verður spennandi að sjá hvernig ég verð í nótt.

Ég ákvað að blogga aðeins í dag, þar sem ég hafði frá þessu að segja. Nú megið þið krossleggja alla fingur og tær fyrir mig og senda mér alla góða strauma sem þið eigið. Ég vonandi blogga ekkert fyrr en krílið er komið ;)

Takk fyrir kommentin allir ;)

39 vikur í dag

4 mars

Og þá er bara að vona að það sé ekki meira en vika eftir. Alla vega ekki mikið meira.

Við Helgi fórum í smá bumbumyndatöku í gær hjá Palla ljósmyndara. Ég hlakka ótrúlega til að sjá þær myndir og miðað við það brot sem ég sá í gær, þá held ég að þetta verði rosalega fallegar myndir. Palli veit náttúrulega alveg hvað hann er að gera svo ég býst ekki við neinu öðru. En við höfum ekki farið í neina svona myndatöku heldur höfum við bara verið að taka sjálf. Við fengum í jólagjöf frá tengdó, árs myndatöku og við ákváðum að byrja með svona síðustu bumbumyndinni og svo 1x í mánuði í 12 mánuði. Þetta verður bara spennandi.

Annars er ég farin að fá smá verki og samdrætti á kvöldin. En það er bara svona í smá stund, og svo hverfur það og ég næ að sofna. Ég yrði ekkert svekkt ef ég færi af stað fljótlega. Ég hef ekkert verið stressuð þessa vikuna samt. Hún er nú búin að líða frekar hratt. En það styttist í að pabbi fari á sjó, þó svo að mér finnist eins og hann hafi komið heim í gær. Og samningurinn var að barnið kæmi fyrir 10 mars eða á þeim degi. Þá er bara að leita að öllum trixum í bókinni fram að 10 og vona að barnið láti sjá sig ;)

En svona að öðru, þá er ég að fá nýja þvottavél. Sú “gamla” sem er ekkert gömul og er enn í ábyrgð ákvað að byrja að láta eins og asni þegar hún var að þvo. En hún fór í yfirförslu hjá viðgerðarmanni núna í vikunni og í ljós kom að það er ekki hægt að finna hvað er að henni annað en það að hún er ekki í lagi. Og þar sem hún er enn í ábyrgð þá er best að ég fái bara nýja. Ég er að sjálfsögðu glöð með það og er mjög ánægð með að þetta var ekki bara í hausnum á mér. Ég var á tímabili bara farin að halda að ég væri orðin geggjuð í hausnum.

Ég held ég hafi ekki meira til að segja í bili. Allir straumar um gangsetningu eru vel þegnir ;) híhí

Rúmar 38 vikur – 1 1/2 vika eftir?

28 feb.

Úps.. er frekar sein í vikulega blogginu þessa vikuna, en vikan einhvern veginn flaug hjá og allt í einu er kominn sunnudagur. En ég er ss. komin rúmar 38 vikur og við fórum í skoðun á miðvikudaginn síðasta. Það leit allt rosa vel út, eins og vanalega, og er því næsta skoðun bara við 40 vikur. Barnið er alveg búið að skorða sig svo það má alveg koma. En ég vil bíða þangað til eftir 1. mars með að vera svaka dugleg í þrifum og öðru. Ég verð því róleg einn dag í viðbót. Hehe ;) Ég á annars tíma hjá tannlækni á morgun, svo það er aldrei að vita nema maður fari af stað eftir það ;) hehe..

Ég stóð ekki við orðin mín um daginn og setti ekki inn myndir, en ég vinn í því í dag. Helgi verður að vinna og ég hef ekkert annað að gera en að prjóna, fiffa til myndir og henda þeim á síðuna.

En konudagurinn var síðasta sunnudag og átti ég yndislegan dag með Helga. Hann fór í bakaríið og keypti blóm handa mér. Svo vorum við bara heima að kúra og glápa á sjónvarpið. Við höfðum ekki gert það í langann tíma og þetta var sennilega í síðasta skiptið sem við 2 gátum það. Svo það var algjört æði.

Það er annars frá rosalega litlu að segja. Síðasta vika leið frekar hratt en var viðburðar lítil. Ég blogga kannski aftur ef eitthvað spennandi gerist ;)

37 vikur – og tíminn líður ágætlega hratt

18 feb.

Já, ég get alveg viðurkennt það að tíminn er ekkert orðinn fáránlega lengi að líða. -ennþá- Enda er ég ekki farin að bíða það mikið. Geri mér alveg grein fyrir því að það er kannski ekki alveg tími til kominn. Spennan er samt alltaf að aukast og ég finn það sérstaklega hjá Helga. Hann er kannski ekki orðinn óþolinmóður, en honum er alveg farið að langa að fá bara barnið í hendurnar og hætta að strjúka bara utan á bumbunni ;) hehe

Annars er pabbi kominn heim og hann tilkynnti mér það að það væri ekki í boði fyrir barnið að vera lengur en til 10. mars þarna inni. Hann verður heima þangað til alla vega, en svo er bara spurning hvenær skipið landar, hvenær hann verður kallaður út aftur. Ég vil helst ekki að hann missi af þessu, en ég fæ örugglega litlu sem engu ráðið um það.

Heilsan er annars að öllu leyti ennþá rosa fín. Er reyndar farin að vakna með pínu bjúg á tánum og búin að taka giftingarhringinn af mér, svona áður en það verður of seint og það þurfi að klippa hann af. En ég verð bara að vera dugleg að henda löppunum upp í loft. Finnst það bara ansi óþæginlegt. Ég sef ennþá ágætlega á næturnar þó svo að pissuferðirnar séu orðnar fleiri en þær voru. Ég er reyndar dugleg að drekka vatn svona seinnipartinn, svo það er ekkert skrítið að þær ferðir aukist yfir nóttina.

Svo er ég bara ennþá í meðgöngusundinu og finnst það algjör snilld. Ég gerði heiðarlega tilraun á mánudaginn og labbaði í sundið. Það var ógeðslegt færi, slabb og bleyta og nánast ekkert búið að moka. Svo það var ógeðslega erfitt að labba og ég gjörsamlega keyrði mig út. En ég tók því bara rólega á þriðjudaginn og vann þreytuna niður.

Helgi fór svo suður um síðustu helgi og kom heim með slatta af barnafötum. Keypti svona sittlítið af hverju fyrir bæði kyn og ég er bara mjög stolt af honum. Það eru ekki allir sem hefðu farið í þetta. En hann vill nú samt ekki viðurkenna það að honum hafi fundist þetta gaman. Sá það samt alveg á honum að hann hafði lúmskt gaman af þessu öllu saman. Bara krúttlegt :)

Áður en ég hætti vil ég óska elsku Helgu Kristínu minni til hamingju með 25 ára afmælið í dag! :*

Ég tek svo nýjar bumbumyndir í kvöld og skelli inn ;) Held þetta sé orðið gott í bili.

Mig langar svo að sjá ykkur kvitta, þið eruð ekki að standa ykkur í stykkinu gott fólk ;) heh

36 vikur – nýjar myndir af púkaherberginu og 2 nýjar bumbumyndir

10 feb.

Þá eru 36 vikur búnar og vonandi bara 4 eftir. Ég er samt alveg undirbúin að þurfa að fara fram yfir, en ég vona samt að það verði ekki. Einfaldlega vegna þess að pabbi er að koma í frí vonandi um næstu helgi og ef ég á á tíma verður hann pottþétt heima. Mér finnst alveg nóg að Elsa systir sé ekki hérna, hvað þá að pabbi verði á sjó. En við vonum bara það besta. Svo finnst mér 10.03.10 rosa flott kennitala OG mamma verður 45. ára þann dag ;) Eins og ég segi, vonandi eru ekki meira en 4 vikur eftir.

Helgi fór annars suður í dag í smá vinnuferð og kemur aftur heim á laugardaginn. Hann ætlar að stússast aðeins fyrir púkann í leiðinni, svo það er ágætt að hann þurti að fara. En þó svo að ég sé mikið ein heima þessa dagana, verður skrítið að fara að sofa og hann ekki heima. Hann skilar sér nefnilega alltaf í rúmið, þessi elska ;) haha.

Í dag hef ég fengið smá spark í rassinn því ég settist við saumavélina og saumaði aðeins. Ég var búin að gera gjafapúða, en átti alltaf eftir að gera áklæði utan um hann. Ég reyndi að byrja einhverntímann, en gafst upp, því þetta var ekki alveg að ganga. Svo ég bara hætti í smá stund og byrjaði svo aftur um daginn. Ég var ekki alveg nógu sátt þá heldur og fór aftur í fílu. En ég dag ákvað ég að taka áklæðið sem ég byrjaði á í seinna skiptið og lagaði það, kláraði, þvoði og straujaði og setti á. Þetta heppnaðist furðuvel og ég er bara rosa sátt við útkomuna ;) Ég setti inn myndir í myndir 2010 ef þið viljið skoða. Svo þvoði ég rúmfötin sem við fengum frá Tengdó og setti á sængina sem verður í rúminu. Við erum svo með aðra minni sæng sem mamma á, en hún verður í vögguni og vagninum. Ég þvoði reyndar líka rúmfötin á hana og setti utan um. Það getur vel verið að ég þurfi að þvo þetta aftur áður en púkinn lætur sjá sig. Ég hef ekki hugmynd um það hvenær maður á að byrja að þvot fötin og svona. Svo öll ráð eru vel þegin hvað það varðar. ;)

Við fórum líka í mæðraskoðun í dag og fengum flotta skoðun eins og alltaf. Barnið er ekki alveg búið að skorða sig, en er á góðri leið með það. Hjartslátturinn var enn og aftur um 130 slög og blóðþrystingurinn bara í fínu lagi.
Á morgun er svo foreldranámskeið um foreldra og barnið fyrstu vikurnar. Ég veit ekki alveg hvort ég ætla að fara. Sé til hvort ég nenni. Maður tapar svo sem aldrei á því.

Áður en ég hætti vil ég óska Klöru, Pétri og Lindu Rós innilega til hamingju með prinsessuna sem fæddist í nótt ;)

Endilega kvittið og skoðið myndirnar. Og ef þið hafið ekki lykilorðið þá bara hafa samband :D