Árið 2008:
Janúar: Skólinn byrjaði á fullu og ég orðin 3ja árs nemi. Ég byrjaði að vinna í Laugum að “þjóna” fólki í sloppum og sundskýlum og ég sjálf í jogging gallanum.
Febrúar: Skólinn fór á Selfoss og klippti þar á þemadögum FSU. Annars er mánuðurinn svo stuttur að lítið kemst fyrir í honum.
Mars: Mamma átti afmæli, skólinn og vinnan gekk sinn vana gang og ef ég man rétt gerðist ekkert meira merkilegt þann mánuðinn. Fjóla vinkona eignaðst hana Lilju Þöll þann 17. Mars.
Apríl: Pabbi átti afmæli, páskarnir og páskafrí. Ég og Hanna mín kíktum á tjúttið um páskana ásamt Jóa og fleirum.
Maí: Önnin að verða búin, prófin byrjuðu og ég rúllaði þeim að sjálfsögðu upp. Ég kom heim í sumarfrí, réttara sagt, að vinna á Passion. Við byrjuðum svo að leggja drög að pallasmíðum.
Júní: Ekkert nema skemmtilegt í vinnuni, ég byrjaði að klippa á fullu og náði frekar góðum framförum í klippingum. Helgi minn varð 25 ára og 5 ára stúdent frá MA. 17. Júní var svo bara kósý. Pallinum miðaði ágætlega áfram, miðað við að unnið var bara frá 18-22 og svo um helgar. Elsa og Krissi kíktu á skerið og Elsa var svo sannarlega með bumbu fyrir allann peninginn!
Júlí: Við hjónin áttum 1 árs brúðkaupsafmæli og héldum við uppá það með því að fara út að borða á Friðrik V. Það var hreint út sagt yndislegt. Ég átti 23 ára afmæli og við vorum langt komin með að smíða pallinn. Hann kláraðist svo og borin viðarvörn á hann. Þvílíkur hiti var þennan mánuðinn og ekki man ég eftir eins sveittum vinnudögum og þennan mánuð. Seint í mánuðinum styttist í að Elsa kæmi krílinu í heiminn.
Ágúst: Verslunarmannahelgin var yndisleg og við slökuðum bara á á fína pallinum. Ennþá var geðveikt veður og Elsa og fleiri biðu eftir að gullið léti sjá sig. Fimmtudaginn 7. Ágúst lét lítil sæt prinsessa sjá sig og hef ég aldrei verið jafn spennt, stolt og ánægð á sama tíma. 25. Ágúst flugum við Helgi svo út til Noregs og fengum að skoða gullið, sem fékk nafnið Alís. Eftir viku dvöl í Bergen, fórum við til Osló og vorum þar hjá Jórunni og Sunnu í nokkra daga. Harpa Vinkona eignaðist svo strákinn sinn, Friðrik Bjarnar, þann 08.08.08. Ekki slæm dagssetning þar.
September: Við komin heim frá Noregi og ég byrjaði í skólanum aftur á 4. önn. Fullt af skemmtilegum áföngum og bara skóli 4 daga í viku. Ég fékk vinnu á Salon Reykjavík hjá Arnari og fílaði það í tætlur. Bæði Stella og Freyja eiguðust svo yndilsega stráka, þá Krisján Þór og Heiðar Magna.
Október: Skóli gekk sinn vanagang. Guðbjörg hélt afmælispartý á Skvísustöðum þann 18. og var mikið fjör. Elsa systir og Alís kíktu í heimsókn og voru í rúma viku. Yndislegt alveg hreint. Árshátíð hárgreiðslunema í Iðnskólanum var haldin og sögur segja að það hafi verið massa fjör. Ég verð að trúa því.
Nóvember: Lítið gerðist þann mánuðinn annað en undirbúningur fyrir próf og tilhlökkun í að fara heim var í hámarki. Ég var á fullu í Galagreiðsluhönnun og fleira. Er ekki frá því nema smá stress hafi gert vart við sig, enda kannski normalt.
Desember: Prófin byrjðu, ég rúllaði þeim upp að sjálfsögðu. Jólafríið byrjði 11. Des og ég byrjaði á Passion. 11 des komst ég líka að því að ég þyrfti að fara aftur suður eftir áramót í skólann og þar af leiðandi missti samninginn minn á Passion. Ég bloggaði um það allt hérna aðeins á undan. Jólin komu og vorum við öll sistkynin í L16. Aðfangadagskvöld var æði og fengum við Helgi æðislegar jólagjafir.
Milli jóla og nýjárs höfðum við það bara rosa gott. Stubba finnur alveg á sér þegar áramótin nálgast og verður aðeins nojaðari en hún er venjulega.
Á gamlárskvöld vorum við svo á Þelamörk hjá tengdó og kom amma hans Helga norður og var með okkur. Það var geggjaður matur og mjög kósý kvöld. Mér fannst áramótaskaupið algjör snilld og bókstaflega grenjaði úr hlátri yfir því!
Árið 2009 byrjaði svo svona:
Við sváfum heillengi fram eftir og þegar við vöknuðum horfðum við á Ríkið til kl. 18 og fórum svo í mat í L16. Spiluðum smá Trivial og kvöddum Elsu og Krissa því þau fara suður á morgun og svo út á laugardaginn. Ég á eftir að sakna þeirra svakalega mikið, og sérstaklega þá að sjá ekki Alísi mína stækka.
Planið er svo að fara suður 6. Jan því skólinn byrjar 7. Jan.
Þangað til ég hef eitthvað meira og merkilegra að segja, þá látum við þetta gott í bili.
