35 vikur – 2 nýjar bumbumyndir
4 feb.
Ætli þetta fari ekki bara að vera vikulegt blogg hjá mér núna. Í dag er s.s. 35 vika og ekki nema 5 vikur í settan dag. Sjáum samt til hvort eitthvað gerist þá
hehe.. En ég setti inn 2 nýjar bumbumyndir í myndir 2009
endilega skoða og kvitta!
Annars er þessi vika búin að vera furðulega fljót að líða. Mér fannst alveg glatað að það væri bara mánudagur þegar ég bloggaði síðast, en svo er bara allt í einu kominn fimmtudagur og helgin framundan. Ég hef ekkert verið að dunda mér í púkaherberginu þessa vikuna. Ég var frekar löt á mánudag og þriðjudag svo þeir dagar fóru eiginlega bara í ekki neitt.
Í gær hitti ég svo gamlar Bautaskvísur, þær Guðrúnu, Birgittu, Hörpu og Guðrúnu Hrönn. Það var mikið spjallað og borðað. Ofboðslega gaman að hitta þær
svo stefnum við bara að því að hafa þetta reglulega. Mér líst bara rosa vel á það. Ég tók með mér myndavélina, en tók engar myndir. Alveg glötuð.
Svo á mánudagskvöldið fórum við Helgi uppá fæðingadeild að skoða aðeins aðstöðuna og svona. Ég er ekki frá því nema það hafi komið svona nettur fiðringur í mann. Þá fyrst varð þetta raunverulegt eiginlega. Núna er ég alveg að missa mig í upplýsingasöfnun fyrir fæðinguna. Slökun, öndun og allt þetta. En það er rosa gott að vera búin að fara þarna uppeftir og sjá þetta allt. Á örugglega eftir að hjálpa manni þegar að þessu kemur. Ég verð samt að passa mig að fara ekki í að bíða. Ég held ég endi á geðdeild ef ég byrja að bíða. En mér finnst hvort sem er ekkert allt vera tilbúið, svo ég hef svo sem nóg að gera fram að fæðingu.
Púki er annars farin að heimta ansi mikið pláss. Spurning hvort það hafi lengdina frá pabba sínum. Það nær alla vega að spyrna sér svona rétt undir rifbeinin hægra megin og svo er rassinn alveg vinstra meginn. Svo teygir það svona úr sér í smá stund
en ég kvarta ekki svo lengi sem það lætur rifbeinin í friði. En það er örugglega ekki langt í að það breytist. En ég held það sé ekki búið að skorða sig ennþá, enda nægur tími til þess.
En jæja.. held þetta sé fínt í bili. Njótið helgarinnar

hehe gott að þú sért ekki farin að biða því ég er það….tek þetta út fyrir þig í leiðinni…..
kikkaði á myndirnar…bara flottar, lýtur afar vel út kellan mín. Vona að við sjáumst um helgina:)
Þú ert rosalega myndarleg með þessa stóru stóru kúlu
Er loksins búin að ákveða hvort kynið ég held að þetta sé og ég segi strákur! Hlakka svo til að fylgjast með þegar litli lætur sjá sig
Hvet þig til að fara ekki að bíða ég lenti í þeim pakka undir lokinn og tíminn leið ALLTOF hægt
Held það sé best að hugsa um þetta sem 42 vikur og allt annað er bónus! hehe
Kveðja Dagrún
Helga: jamm, það er ágætt að þú takir bara biðina á þig
hehe
ég get engan veginn ákveðið hvort ég held, fæ hvorugt á tilfinninguna
Dagrún: hehe, strákur já.. það er komin stór meirihluti sem heldur það, svo það verður bara spennandi að sjá