Mánudagur eftir góða helgi
1 feb.
Þá er enn einn mánudagurinn gengin í garð og við hjónin áttum bara yndislega helgi. Í fyrsta skiptið síðan við fluttum var Helgi ekki upptekinn við allt annað en að vera með mér, og það var bara ágætist tilbreyting. En við horfðum að sjálfsögðu á EM og Helgi hefur held ég aldrei verið jafn spenntur yfir íþróttamóti. Bara fyndið
En við fórum á laugardaginn og versluðum aðeins fyrir púka. Keyptum lak á rúmið og vögguna, taubleyjur, þvottapoka og eitthvað fleira. Svo núna fer maður bara að fara að þvo fötin held ég. Ég kannski næ að geyma það aðeins lengur, sjáum til
Ég setti smá lista yfir hugmyndir hvað okkur vantar fyrir púkann, fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða það, þá er bara að smella hér eða smella á bumbupúki hérna efst á síðunni.
Annars er síðasta vikan í meðgöngusundinu í þessari viku. Ég held samt að ég taki annað námskeið fram að fæðingu. Þetta er svo hressandi og hrikalega skemmtilegt.
Ég hef annars ekkert að segja. Það er ekki mikið spennandi sem gerist hjá mér þessa dagana. En ég lofa þið missið ekki af því ef eitthvað breytist
hehe
-Svo bara kvitta-

Engar athugasemdir