34 vikur í dag
28 jan.
Í dag eru sléttar 34 vikur liðnar og ekki nema 6 vikur í settan dag. Það er frekar skrítið að hugsa til þess að það sé í raun bara febrúar eftir.
Við fórum í mæðraskoðun í dag og allt leit bara glimrandi vel út. Barnið er laust skorðað en er samt í höfuðstöðu. Hjartslátturinn var vel rokkandi, fór alveg frá 110 og upp í 150. Blóðþrýstingurinn var líka í fínu lagi og ljósurnar gátu ekki verið ánægðari með þetta allt saman. Svo eigum við aftur skoðun eftir 2 vikur.
Við erum svo að pæla í að fara uppá fæðingadeild að skoða í næstu viku. Það er nefninlega búið að vera nemi hjá ljósunni okkar, og hún er að vinna á mánudag og vildi endilega fá okkur þá. Ég hugsa að við förum þá, það verður ágætt að hafa einhverja sem maður kannast við þarna.
Annars er lítið annað í fréttum. Næturnar eru orðnar aðeins öðruvísi en ég er vön. Ég er farin að vakna oftar og svona. Tala nú ekki um brjóstsviðann. Hann er orðinn ansi öflugur svona rétt fyrir svefn. En ég er alls ekki að kvarta. Þetta er hluti af ferlinu sem gengur yfir.
Ég hef ekkert meira að segja, svo ég læt þetta duga í bili. Endielga kvittið

Tetta er ordid svo spenno ad eg er ad missa mig! Bleiku skornir standa klarir fyrir Elsu litlu prinsessu hahahah!
Don’t disappoint me now!
Kyss!