Bara vika eftir af janúar
23 jan.
Þá er janúar alveg að verða búinn. Hann er búinn að líða furðulega hratt miðað við að ég hef ekkert verið að vinna og flestir dagar fara í að finna mér eitthvað að gera. Ég er búin að vera dugleg að dunda mér í undirbúningi fyrir púka.
Í dag setti Helgi saman rimlarúmið og setti gardínustöngina upp. Ég var búin að sauma gardínurnar svo þær eru komnar upp. Ég saumaði svo í dag smá svona stuðkant inní vögguna. Þannig að núna á ég bara eftir að sauma utan um gjafapúðann. Ég verð að geyma eitthvað þangað til í febrúar. Hehe
En þetta er allt að smella saman.
En mér er svo agalega farið að klæja í puttana yfir klippileysi. Væri alveg til í að vera að klippa eitthvað. Svo ef jólaklippingin er útrunnin hjá ykkur, þá bara bjalla á mig
hehe.
Annars er ég búin að setja inn myndaalbúm fyrir 2010 og þar eru nokkrar nýjar myndir af herberginu. Það er sama lykilorð og er á 2009 albúminu, svo ykkur sem vantar lykilorðið, endilega bara hafið samband.
Held þetta sé gott í bili.


Engar athugasemdir