Færslur frá júní 2009

Sveinsprófinu náð

10 júní

Með 7 í verklegu og 10 í skriflegu ;)

Ég er mjög sátt! :D

Blogpása í sumar

3 júní

Ég er að hugsa um að taka smá blogpásu í sumar. Ég hef reyndar ekki verið svakalega dugleg uppá síðkastið, en í sumar ætla ég bara að blogga ef mér finnst ég hafa eitthvað verulega sérstakt að skrifa um.

Annars er allt í blóma hérna. Ég er enn að bíða eftir útkomu úr sveinsprófinu svo það er ekkert að frétta þaðan. Við Helgi fórum norður um síðustu helgi og nutum þess í botn. Stubba ákvað hins vegar að poppa aðeins uppá ferðina og stakk af í einum göngutúr, hljóp þangað til að henni fór að blæða á loppunum og þurfti þar af leiðandi að taka því rólega það sem eftir var helgarinnar. Við hjónin áttum samt sem áður yndislega helgi með fjölskyldu og vinum. Takk fyrir helgina allir sem við hittum :D

Við eigum svo bara eftir að vinna þessa viku og næstu og erum svo komin í tveggja vikna sumarfrí. Það verður algjört æði að taka smá frí og slaka á. Nota tímann saman í að gera eitthvað skemmtilegt.

Þetta er svona helstu fréttir. Annars er það bara vinna, borða, sofa og reyna að sinna heimilsstörfunum.

Þangað til næst.