Færslur frá maí 2009

Aldrei á minni ævi…

21 maí

hefði mér dottið í hug að ég myndi útskrfast úr skólanum með hæstu einkunn í hópnum. Í dag gerðist það og ég er ekki ennþá að átta mig á því. Ég er ekkert smá stolt af sjálfri mér, og verð það sennilega út árið! ;)

En dagurinn í dag er búinn að vera algjört æði. Mamma og Pabbi komu suður í morgun og voru með okkur í dag. Þau keyrðu svo aftur heim núna í kvöld. Mamma var enn ánægðari með að hafa komið suður í þennan eina dag og var að rifna úr stolti. Við fórum svo út að borða á Caruso, þar sem var geggjaður matur. Pabbi ákvað að splæsa matinn, þessi elska! Takk fyrir yndislegan dag, mamma og pabbi :* Verst að Daníel bróðir kom ekki, en ég knúsa hann bara um næstu helgi.
Ég fæ svo úr sveinsprófinu í júní, og get ekki beðið eftir að fá það. Svo er stefnan tekin á að klára samninginn minn í september/október. Þá er maður orðinn fullgildur sveinn. Ekki amarlegt það. ;)

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Blogga meira við betra tækifæri.

Útskrift á morgun

21 maí

Jamm á morgun er ég að útskrifast. Tja ekki á morgun, eftir 13,5 klst.

Búin með

16 maí

verklega sveinsprófið!!!

til hamingju ég!

blogga seinna :D

Árið næstum hálfnað

2 maí

Tíminn líður ekkert smá hratt. Það er kominn maí og mér finnst við Helgi nýflutt suður og önnin nýbyrjuð. Ég er engan veginn að átta mig á því að ég sé að fara að útskrifast úr skólanum eftir 19 daga. En á móti hlakka ég rosalega til að klára þann áfanga og byrja á nýjum sem er að vinna. Ég klára samninginn minn í síðasta lagi í október, svo eftir það verð ég orðinn fullgildur hárgreiðslusveinn, ef ég fæ að taka sveinsprófið í júní. Ég fæ það vonandi á hreint í næstu viku.

Það er annars mikið að gerast hjá okkur hjónum. Við erum búin að skipuleggja sumarfríið okkar í sumar. Ætlum að fara 2 vikur í lok júní og svo 2 vikur í byrjun ágúst. Við verðum fyrir norðan í ágúst-fríinu að passa Láka, meðan ma, pa og Dan fara til Noregs að hitta Elsu systir og co. Vorum að pæla hvort við ættum að klára pallinn í Stekkjartúninu þá líka, en við erum ekki alveg búin að ákveða það :D Við erum ekki alveg búin að ákveða hvað við gerum í fyrra fríinu, en það verður örugglega bara slakað á og haft það næs.

Í næstu viku eru svo 4 próf. Skeggsnyrting, herraklipping, Iðnfræði og dömu klipping og litur. Þannig að það verður nóg að gera. Harpa vinkona er svo líka að koma suður svo ég verð að hitta hana aðeins. Það er ekki annað hægt. Ég sá hana síðast í desember held ég. Frekar langt síðan. Á morgun þarf ég svo að læra undir iðnfræðina. Ef ég er of örugg með að kunna hana þá fæ ég allt í rassgatið til baka, svo ég ætla að læra á morgun. Þó svo að ég kunni þetta allt.

En í dag ákváðum við hjónin að taka smá Kringluferð. Ég fann mér ný gleraugu sem ég er að pæla í að kaupa mér. Helgi fann sér buxur í Jack&Jones. Starfsfólkið þar er bara hlægilegt. Fannst þau frekar fyndin. Gellurnar allar svo ógeðslega uppteknar af sjálfum sér, að þær máttu ekki vera að því að afgreiða. Gaurarnir svo ógeðslega sjúskaðir og subbulegir. Búnir að liggja í ljósum síðan um fermingu og farnir að flagna eftir því. Svo stóðu þau öll bara fyrir aftan afgreiðsluborðið og hámuðu í sig nammi, því það er jú, 50% afsláttur af nammibarnum í Hagkaup á laugardögum. Djammtónlistin í botni og þau dilluðu sér svona af og til í takt við hana. Mættu örugglega í vinnuna strax eftir djamm gærkvöldsins.
-Gaman að svona liði-

Ég ætla að fara og elda kvöldmatinn ;)