Páskafríið löngu búið og brjálað að gera

26 apríl

Heldur betur. Apríl er að verða búin og prófin eru að fara að byrja. Á morgun er síðasti mánudagurinn fyrir próf og á fimmtudaginn byrjar próftíðin. En þetta verður langt blog, því ég ætla að byrja á byrjuninni.

Við hjónin brunuðum norður yfir páskahelgina. Það var ótrúlega gott að komast aðeins í ró og slaka á fyrir norðan. Pabbi kom fyrr heim en áætlað var, því það var ekkert fiskerí, svo það var bónus að fá að hitta hann líka. Eftir mikla slökun, góðan mat og mikinn svefn fórum við suður á annan í páskum.
Elsa systir, Alís og Silje vinkona Elsu komu svo til landsins á þriðjudeginum. Ég skutlaðist á Keflavík til að sækja þær og fórum svo á Eldsmiðjuna og fengum okkur alvöru pizzu. Eftir það röltum við aðeins niður Laugarveginn og fórum í Kringluna áður en þær áttu flug norður sama dag. Þessi vika leið mjög hratt og áður en ég vissi af vorum við Helgi lögð af stað norður í ferminguna hans Daníels bróður. Það var rosa skemmtileg helgi og Daníel sáttur við daginn. En að mínu mati voru páskarnir alltof stuttir og tíminn kannski aðeins of fljótur að líða.
Elsa, Alís og Silje áttu svo flug heim til Bergen í dag og var yndislegt að hafa þær, þó ég hafi hitt þær frekar takmarkað. En það verður bara stutt í að þær komi aftur.

Á föstudaginn síðastliðinn var svo Dimmitering skólans. Við hárgreiðslan vorum bleikir flamingófuglar og klárlega í flottasta búningnum. Þetta var heljarinnar dagur og mikið drukkið. Um kvöldið fóru svo allir útskriftarnemar á Broadway. Þar var geggjaður matur og geggjað skemmtileg dagskrá. Ég var farin heim um miðnætti, alveg búin á því.

Hins vegar er ekki all vesen búið. Ég fékk að vita í síðustu viku að ég fæ ekki að taka sveinsprófið í maí. En ég á eftir að fara með þetta í menntamálaráðuneytið og tékka hvort ég fái ekki undanþáguna þaðan. Sem þýðir að ég á eftir að semja heljarinnar bréf og senda.

Ég hugsa ég hafi þetta ekki lengra í bili.

3 athugasemdir við “Páskafríið löngu búið og brjálað að gera”

  1. Elsa 28. apríl 2009 kl. 10:00 #

    Notadu bara sambøndin Anika! Ef tu heldur ad Kata geti eitthvad gert fyrir tig, ekki hika vid ad spurja! I versta falli getur hun tad ekki. I besta falli færdu ad taka profid:D

    Knus og kossar hedan min kæra.

    btw geggjud mynd af ykkur komin inna siduna

  2. Eva Dögg 29. apríl 2009 kl. 19:30 #

    hæhæ:)…ohh hvað það er ömurlegt að þurfa að fara þessar leiðir til að fá að taka sveinsprófið strax. En ég get samt huggað þig með því að ég hef þurft að senda svona bréf til menntamálaráðuneytisins, í sambandi við samning hjá mér, var búin að vera að vinna á stofu í Rvk í ár og svo kom það bara upp að þau voru ekki með nemaleyfi, alveg ömurlegt!!en u.n.s gat ekkert fyrir mig gert svo ég sneri mér að menntam. og viti menn ég fékk allann tímann minn metinn, og það tók ekkert langann tíma að fá niðurstöðuna, svo vonandi gengur þetta líka hjá þér sæta:)…ég mun krossa puttana fyrir þig:)

  3. Aníka 29. apríl 2009 kl. 20:51 #

    Takk fyrir þetta Eva mín ;) en jamm, ég hef fulla trú á menntam.ráðuneytinu :D held að þeir séu að gera góða hluti ;) ég ætla einmitt að tékka á þeim í næstu viku ;)

Skrifa athugasemd