Færslur frá apríl 2009

Páskafríið löngu búið og brjálað að gera

26 apríl

Heldur betur. Apríl er að verða búin og prófin eru að fara að byrja. Á morgun er síðasti mánudagurinn fyrir próf og á fimmtudaginn byrjar próftíðin. En þetta verður langt blog, því ég ætla að byrja á byrjuninni.

Við hjónin brunuðum norður yfir páskahelgina. Það var ótrúlega gott að komast aðeins í ró og slaka á fyrir norðan. Pabbi kom fyrr heim en áætlað var, því það var ekkert fiskerí, svo það var bónus að fá að hitta hann líka. Eftir mikla slökun, góðan mat og mikinn svefn fórum við suður á annan í páskum.
Elsa systir, Alís og Silje vinkona Elsu komu svo til landsins á þriðjudeginum. Ég skutlaðist á Keflavík til að sækja þær og fórum svo á Eldsmiðjuna og fengum okkur alvöru pizzu. Eftir það röltum við aðeins niður Laugarveginn og fórum í Kringluna áður en þær áttu flug norður sama dag. Þessi vika leið mjög hratt og áður en ég vissi af vorum við Helgi lögð af stað norður í ferminguna hans Daníels bróður. Það var rosa skemmtileg helgi og Daníel sáttur við daginn. En að mínu mati voru páskarnir alltof stuttir og tíminn kannski aðeins of fljótur að líða.
Elsa, Alís og Silje áttu svo flug heim til Bergen í dag og var yndislegt að hafa þær, þó ég hafi hitt þær frekar takmarkað. En það verður bara stutt í að þær komi aftur.

Á föstudaginn síðastliðinn var svo Dimmitering skólans. Við hárgreiðslan vorum bleikir flamingófuglar og klárlega í flottasta búningnum. Þetta var heljarinnar dagur og mikið drukkið. Um kvöldið fóru svo allir útskriftarnemar á Broadway. Þar var geggjaður matur og geggjað skemmtileg dagskrá. Ég var farin heim um miðnætti, alveg búin á því.

Hins vegar er ekki all vesen búið. Ég fékk að vita í síðustu viku að ég fæ ekki að taka sveinsprófið í maí. En ég á eftir að fara með þetta í menntamálaráðuneytið og tékka hvort ég fái ekki undanþáguna þaðan. Sem þýðir að ég á eftir að semja heljarinnar bréf og senda.

Ég hugsa ég hafi þetta ekki lengra í bili.

Páskafrí

7 apríl

Þá er langþráð páskafrí hafið. Ég er samt ekkert að slappa af né hafa það kósý. Í gær gerði ég verklýsingar og þreif eitthvað af þessari íbúð okkar. Eldaði svo handa Helga mínum, hreinsaði eyrun á Stubbu og litaði systur hans Helga. Ég gæti alveg hugsað mér að vera heimavinnandi húsmóðir í einhvern tíma. Fannst þetta bara alveg ágætis dagur.

En við hjónin leggjum í hann norður eftir vinnu á morgun. Ætlum að sjálfsögðu að taka Stubbu með og erum við komin með lyf eftir því. Það verður geggjað að komast heim! Hitta mömmu, pabba og Daníel. Tengdó verða fyrir vestan, svo við verðum á Þeló. Það verður bara kósý :D
Svo er bara vika í að Elsa, Alís og Silje komi til landsins. Silje er vinkona Elsu sem ætlar að koma með þeim. Get hreinlega ekki beðið!! Hlakka ekkert smá til.
Það styttist líka í að einkaprinsinn (Daníel bróðir) verði fermdur. Það verður örugglega frábært. Erum einmitt búin að kaupa gjöfina og ég er viss um að hún slái í gegn. Vona það alla vega.

En útí annað. Ég er búin að sækja um undanþágu til að fá að taka sveinspróf og fæ vonandi að vita hvað útúr því kemru fjljótlega efitir páska. Ég vona innilega að ég fái þetta. En ef ekki, þá bara verð ég að sætta mig við það og taka prófið í janúar. Finnst það samt fúlt ef svo fer, en sjáum til.

Ég ætlaði annars bara að henda smá hérna inn.

Gleðilega páska allir saman!