Pestinni boðið í kaffi

26 mars

Eða meira: ég eyddi aleigunni í að fá pestina hingað og fékk engann afgang. Var svo heppin að hún bankaði uppá í vinnuni í gær, um hádegisleytið. Eftir vinnu var svo ekki annað í boði en heitt bað, yndislegur Helga-matur, verkjatöflur og rúmið. Ég steinsofnaði fyrir 8 held ég. Ég svaf svo nánast án þess að vakna til 8 í morgun og hringdi mig inn veika í skólann.
Svo dagurinn í dag er búinn að einkennast af sjónvarpsglápi, svitaköstum og snýtibréfum. Spennandi ég veit.

En síðustu daga hefur svo sem ekki mikið gerst. Það styttist með hverjum deginum í Dimmiteringu í skólanum. Við stelpurnar í bekknum ákváðum í janúar hvað við vildum vera. Ákváðum svo að gera ekkert í því fyrr en núna svo við erum að falla á tíma með búningakaup. Tala nú ekki um að þetta er ógeðslega dýrt og ekki skítur þjóðfélagið peningum þessa dagana. En þetta er í vinnslu.

Það er ekki nema næsta vika eftir og þá er ég komin í páskafrí. Við Helgi og Stubba ætlum norður á miðvikudeginum eftir vinnu og vera yfir helgina. Svo förum við aftur norður helgina 19. því þá er Daníel að fermast. Það er svo stutt í þetta, að ég get ekki beðið. Elsa, Alís og Silje, vinkona Elsu, koma svo 14. apríl.
1. aprí sendir Elsa systir svo hundinn sinn Láka heim. Mamma og pabbi ætla að taka við honum og vera með hann í óákveðinn tíma. Hann þarf að vera í einangrun í ca. 3 vikur. Ég vona að það eigi ekki eftir að fara illa með hann. Þau hljóta að fara vel með dýrin sem eru að koma til landsins.

Í dag eignuðust Heiða frænka og Sveinar lítinn strák. Ég vil óska þeim, Beggu og Heidda og fjölskyldu, innilega til hamingju með flotta prinsinn!

En það sem ekkert meira er að gerast, þá held ég að þetta sé gott í bili.

Engar athugasemdir

Skrifa athugasemd