Færslur frá mars 2009

Orðin hress

30 mars

En er ennþá með kvef. Enda fer það bara hægt og rólega.

Við Stubba fórum í smá göngutúr svona í morgunsárið. Ég ætlaði að taka massa æfingu, en það er svo brjálæðislega hvasst og kalt, að ef ég hefði farið að hlaupa hefði ég sennilega kafnað. Ég átti erfitt með andadrátt á köflum í göngutúrnum. En við tókum smá hring og enduðum á túninu sem er hérna rétt hjá og köstuðum hringnum. Þetta var bara hressandi.

Helgin er búin að vera róleg. Ég var með hita frá miðvikudeginum og fram á laugardag. Í gær var ég svo ágætlega hress og hitalaus. Enda var ég að verða ansi geggjuð á þessum hita og inniveru. Fór aðeins út með Stubbu í gærkvöldi og það var rosa gott að anda aðeins fersku lofti.
En við hjónin höfðum það að mesta kósý í gær. Við gerðum nánast ekki neitt og Helgi var í letifíling allann daginn. Sem er bara ágætt, því þá gátum við aðeins verið tussuleg saman ;) hehe..

Á miðvikudaginn ætlar Elsa systir svo að senda Láka sinn heim. Hann þarf að vera í einangrun í einhvern tíma, eins og ég sagði í fyrra blogginu mínu um daginn. Það verður gaman að fá hann til landsins og þá getur mamma haft einhvern til að draga sig á gönguskíðunum. En þetta verður örugglega erfitt fyrir Elsu og Krissa að láta hann frá sér. En þau verða bara að bíta á jaxlinn. Þetta gefur þeim þá bara enn meiri ástæðu til að koma oftar heim! ;)

En ég ætla að henda mér í sturtu, fá mér að borða og hendast svo í átök dagsins.

Pestinni boðið í kaffi

26 mars

Eða meira: ég eyddi aleigunni í að fá pestina hingað og fékk engann afgang. Var svo heppin að hún bankaði uppá í vinnuni í gær, um hádegisleytið. Eftir vinnu var svo ekki annað í boði en heitt bað, yndislegur Helga-matur, verkjatöflur og rúmið. Ég steinsofnaði fyrir 8 held ég. Ég svaf svo nánast án þess að vakna til 8 í morgun og hringdi mig inn veika í skólann.
Svo dagurinn í dag er búinn að einkennast af sjónvarpsglápi, svitaköstum og snýtibréfum. Spennandi ég veit.

En síðustu daga hefur svo sem ekki mikið gerst. Það styttist með hverjum deginum í Dimmiteringu í skólanum. Við stelpurnar í bekknum ákváðum í janúar hvað við vildum vera. Ákváðum svo að gera ekkert í því fyrr en núna svo við erum að falla á tíma með búningakaup. Tala nú ekki um að þetta er ógeðslega dýrt og ekki skítur þjóðfélagið peningum þessa dagana. En þetta er í vinnslu.

Það er ekki nema næsta vika eftir og þá er ég komin í páskafrí. Við Helgi og Stubba ætlum norður á miðvikudeginum eftir vinnu og vera yfir helgina. Svo förum við aftur norður helgina 19. því þá er Daníel að fermast. Það er svo stutt í þetta, að ég get ekki beðið. Elsa, Alís og Silje, vinkona Elsu, koma svo 14. apríl.
1. aprí sendir Elsa systir svo hundinn sinn Láka heim. Mamma og pabbi ætla að taka við honum og vera með hann í óákveðinn tíma. Hann þarf að vera í einangrun í ca. 3 vikur. Ég vona að það eigi ekki eftir að fara illa með hann. Þau hljóta að fara vel með dýrin sem eru að koma til landsins.

Í dag eignuðust Heiða frænka og Sveinar lítinn strák. Ég vil óska þeim, Beggu og Heidda og fjölskyldu, innilega til hamingju með flotta prinsinn!

En það sem ekkert meira er að gerast, þá held ég að þetta sé gott í bili.

Margt að gerast!

17 mars

Jæja! Þá er keppnin búin og var ótrúlega gaman að taka þátt. Geggjuð reynsla og gaman að sjá hvað aðrir eru að gera. Ég varð rosalega ánægð með útslitin, 2 Akureyringar í þremur efstu sætunum. Geir á Medullu vann og Hildur vinkona var í 3ja. Gæti ekki verið sáttari með það. Hvað mig varðar, gekk mér ágætlega. Ég var að minnsta kosti ánægð með hvernig liturinn kom út og var sátt við klippinguna sem ég gerði. Ég var hins vegar ein af tveimur sem var ekki með stutta línu.

Í kvöld var svo námskeið með nýjustu línunum sem eru í gangi í dag. Það voru 4 fagmenn að klippa og var ótrúlega flott og gaman að sjá.

Ég er svo algjörlega að missa mig í saumaskapinn akkúrat núna. Er að sauma svona slefklúta handa Alísi minni og er að hugsa um að gera leggings í stíl líka. Ég saumaði 2 smekki í dag og 2 í gærkvöldi. Svo dembi ég mér í að búa til snið fyrir leggings þegar Elsa hefur látið mig hafa mæingar ;)

En ég er eiginlega hætt að nenna að blogga, því ég fæ engin komment. Nema frá Helga. Sem að eru rosalega velkomin. En mig langar að sjá hvað aðrir hafa að segja ;) hehe.

Hef þetta ekki lengar í bili.

Keppni á morgun

14 mars

Og spenningurinn er farin að aukast. Ég er samt alveg búin að vera róleg yfir þessu. Svo er reyndar spurning hvernig ég verð í fyrramálið og þegar keppninni er startað.

Ég er sem sagt búin að lita módelið mitt, og það tókst bara nokkuð vel. Ég þurfti reyndar að lita hana aftur í dag, en það voru bara 6 lokkar eða eitthvað. Á morgun ætla ég svo að farða hana og svo klippi ég hana í keppninni. Þetta verður örugglega geggjað gaman og ég hlakka bara rosa til ;)

Helgi fór svo norður í gærmorgun og kom heim aftur í dag. Ég öfundaði hann pínu, langaði rosalega að fara með honum norður, en ég verð bara að bíða fram að páskum. Ég vona að við getum farið miðvikudaginn fyrir skírdag, eftir vinnu, og verið fram yfir helgina. Það yrði æði. En sjáum til.

Svo styttist óðum í að Elsa og Alís komi heim í smá heimsókn. Þær koma 14. apríl og ætla að vera alveg til 26. apríl. Ég fæ samt sennilega ekkert að sjá þær nema bara fermingarhelgina hans Daníels bróðurs. Hann fermist 19. apríl. Orðinn ótrúlega stór strákurinn ;)

En ég ætla ekki að hafa þetta lengar í bili. Er að hugsa um að fara og kúra með Helga mínum.

Læt ykkur vita hvernig keppnin fer :D

Komin með módel

6 mars

Jæja, þá er ég loksins búin að finna módel fyrir Intercoiffure keppnina sem er 15. mars. Núna get ég loksins farið að hlakka til :D Núna þarf ég bara að skoða á fullu hvað ég ætla að gera og negla það niður.

Annars er þessi vika búin að líða frekar hratt. Hún er búin að vera pökkuð og mikið að gera. Það var skóli og vinna hjá mér. Bara vinna hjá Helga, svo er það náttúrulega að koma heim og elda og sinna hvort öðru. Ég er búin að vera frekar orkulaus þessa viku. Veit ekki hverju er um að kenna.

Í dag negldum við Helgi sumarfríið okkar. Við ætlum að taka fyrstu 2 vikurnar í júni, og svo fyrstu 2 vikurnar í ágúst. Ég held að það verði bara ágætt. Helgi er ekki á því að taka það allt í einu eins og hann gerði í fyrra. Hann var orðinn ansi eirðarlaus undir restina. Hehe.
Svo í dag áttaði ég mig á því hverst stutt er eftir af þessari önn. Það eru ekki nema 4 vikur í páskafrí og þá er skólinn nánast búinn. Ég ætla aðeins að lista þetta niður:

24. apríl – Dimmitering
30. apríl – 1. prófið
5. maí – 2. prófið
7. maí – Síðustu 2 prófin
Í kringum 16. maí verður sveinsprófið sennilega haft.
19. maí – Er einkunna afhending og æfing fyrir útskrift
21. maí – Er útskrift úr Iðnskólanum
22. maí – Full vinna hefst á Salon Reykjavík.

Mér finnst vera heldur stutt í þetta. Ég vil hér með auglýsa eftir módelum í bæði burtfararpróf úr skólanum og í sveinspróf. Mig vantar:

Dömu klippingu og lit – 2 módel
Herra klippingu – 2 módel
Skeggsnyrting og rakstur – 1 módel
Permanent – 2 módel (helst ekki sítt hár)
Blástur – 1 módel
Uppgreiðsla – 1 módel

Endilega hafið samband við mig ef þið eruð tilbúin að hjálpa mér, eða vitið um einhvern sem er tilbúinn að vera módel hjá mér. Það er eiginlega betra að fá að vita þetta fyrr en síðar.

En ég ætla að fara og borða með Helga mínum. Hann eldaði grænmetislasagna sem ilmar rosalega vel :D