Ég get svo svarið að ég er búin að keyra borgina endilanga og til baka í dag. Ég þurfti að brasa helling og hér er listinn:
* Hitta Eirík, tengdapabba Hannesar sem á íbúðina sem við leigjum, og sækja yfirlýsingu sem þarf að fylgja leigusamningnum í þinglýsingu. Það kostaði ekkert, nema bensín.
* Fara með Stubbu í örmerkingu til dýralæknis. Það kostaði 5700 kall
* Fara svo með vottorð frá dýralækni til heilbrigðiseftirlitsins og skrá hana. Það kostaði FOK**** 16500 kall! Skráningargjald 7500 og Eftirlitsgjald 9500.
* Fara niður í Þjóðskrá að sækja fjölskylduvottorð (í Borgartúni, RVK). Það kostaði 900 kall
* Fara á Sýslumann í Hafnarfirði og þinglýsa leigusamningnum. Það kostaði 2700 kall
* Ég ætlaði líka að skila inn umsókninni fyrir húsaleigubæturnar til Álftanesbæjar, en eintak af leigusamningi þarf að fylgja með því, svo það þarf að bíða fram á mánudag. Veit ekki hvað það mun kosta, en ég bý mig undir það.
* Ég gerði heiðarlega tilraun til að fara með gaskút og skila honum. Hann er tómur og enginn ástæða að fylla á hann ef við eigum annan fullann heima. Það er ekki hægt að fara bara með hann á bensín stöð, heldur þarf að fara með hann eitthvert annað í einhverri götu sem ég fann ekki. Hún var allavega vel falin, og eftir dágóðan rúnt gafst ég upp og fór aftur heim. Svo það verður að bíða betri tíma. Þar hefði ég fengið einhvern pening til baka, en hann fer uppí bensínkostnaðinn sem fer í að keyra og leita að þessum dularfulla stað. Svo þar kem ég út á núlli, eða jafnvel í mínus.
En kostnaðurinn við daginn í dag er: 25.800 kall, fyrir utan bensínkostnaðinn. Og ef ég man rétt, þá þarf að þinglýsa umsókninni fyrir húsaleigubæturnar, svo þar er annar eins peningur sem mér finnst ekki vera þess virði að borga.
Mér finnst fáránlegt að ég borgi konu á Þjóðskránni 900 kall, fyrir að prenta út blað sem segir að ég og Helgi búum á sama stað, í sama sveitafélagi. Ég hefði alveg getað skrifað þessar upplýsingar niður sjálf.
Þinglýsingin kostaði ekki nema 1300 kall síðast þegar ég athugaði (reyndar svolítið langt síðan) en samt. Konan sem afgreiddi mig þar er greinilega frekar leið á lífinu, og finnst ekki gaman að þinglýsa. Miðað við að hún brosti ekki neitt og horfði á mig eins og ég væri nautheimsk, þegar ég skildi ekki alveg hvað hún var að segja. Síðast þegar ég vissi þá borga ég, hinn almenni skattgreiðandi til íslenska ríkisins, launin hennar.
Á heilbrigðiseftirlitnu, þar sem ég skráði Stubbu, var alveg ágætt. Indælis kona sem tók á móti umsókninni. Henni fannst þó pínu asnalegt að ég hefði ekki farið með Stubbu í einhvern skóla og dældi í mig blöðum og dóti með upplýsingum um skóla og fleira. Og af því að Stubba hefur ekki farið í skóla, þá borgum við meiri eftirlitskostnað (sem felur í sér áminningu um ormarhreinsun og slíkt). Ég veit ekki af hverju ég borga meira af því ég eða Helgi kennum Stubbu sjálf. Mér finnst það frekar asnalegt ef ég má segja alveg eins og er.
Það eina sem mér fannst allt í lagi að borga í dag, var örmerkingin fyrir Stubbu. Stubba fékk þó alla vega verðlaun fyrir hvað hún var dugleg, sæt og góð. Fyrir utan hvað dýralæknirinn var yndisleg í alla staði. Og núna er auðvelt að finna hana og mig ef við týnum hvor annari. Til að toppa það, þá var konan sem var í afgreiðslunni og tók við peningunum mínum þar, nágranni okkar, og býr í blokkinni hérna á móti. Lítill heimur þó svo maður sé í “stórborginni” Reykjavík
Ég ætla að láta þetta duga af biturð í bili. Endilega deilið með mér óþarfa kostnaði sem þið hafið lent í
Nýlegar athugasemdir