nýtt útlit, ný banika.net, allir að skilja eftir sig spor!
13 jan.
Helgi er alveg hættur að gera og græja gamla kerfið, þannig að hann rak mig yfir í Wordpress. Ekkert nema gott um það að segja. En nýtt útlit í gangi og allt að gerast
Ég er búin að vera sveitt síðust daga að læra á þetta. Ok, ég segi kannski ekki alveg sveitt, en ég er búin að sitja eitthvað yfir þessu.
Það sem er í fréttum frá því síðast er ekki mikið. Helgi er farinn aftur norður, mér ekki til mikillar gleði. En það er stutt eftir, svo þið verðið að lesa vælið í mér í smá tíma í viðbót. hehe
Skólinn byrjar vel. Mánudagarnir verða reyndar frekar skrítnir, þar sem ég er bara eftir hádegi í skólanum. Þá er ég í blautbylgjum, klípum og uppgreiðslu (skiljanlegt fyrir ykkur? -veit ekki). Ég verð að finna metnaðinn hjá mér í blautbylgjum og klípum. Ég er bara svo óheyrilega léleg í þessu. En þetta verður örugglega gaman þegar ég verð orðin alveg eldklár. Uppgreiðslan verður “ekkert mál”. Ég set það í gæsalappir því ef ég verð alltof örugg, þá á það pottþétt eftir að koma og bíta mig í rassin, svo ég fer öruggu leiðina.
En ég hugsa ég hafi þetta ekki lengra í bili. Mér finnst að allir eigi að skilja eitthvað eftir sig. Og endilega segja mér hvað ykkur finnst um nýju banika.net. Mér finnst það ekkert of kröfuhart, en ykkur?
Góða nótt!

Þetta kemur ekki og bítur í rassinn eins og ég geri
Gleðilegt nýtt ár og gangi ykkur vel Anika mín á nýjum slóðum, gaman að fara inn á síðuna þína og fylgjast með gangi mála. Afi biður að heilsa.
Gasalega lekker síða hjá þér elskan til hamingju með það ég var nú orðin ansi leið á þeirri bleiku hlakka til að eyða helginni með þér.
Nýja Banikan er mega töff
úúúúú geggjað kúl
alveg gg look, líst vel á smá MMORPG í þér stelpa
Hæhæ..
Frændi er sem sagt að flytja suður.. Er að ná þessu öllu saman. Verður Guðbjörg þá ein á hringbrautinni?
Líst svakalega vel á þetta look. Fjólublár alltaf fallegur.
þá er bar að æfa sig betur i bylgjum
flott nyja lúkkið
Flott síða, Ég er orðinn spenntur á að prufa þetta kerfi