Færslur frá janúar 2009

Stjörnuspá

29 jan.

Stjörnuspáin mín á mbl.is í dag segir :

Krabbi: Þig dreymir um að flytja á landbyggðina, eða alla vegna rétt út fyrir bæinn. Leyfðu einhverjum að njóta þess með þér.

Ég er reyndar ekki að flytja á landsbyggðina heldur af henni og í bæinn. Og Helgi minn er svo heppinn að njóta þess með mér :D Fannst þetta fyndin tilviljun!

27. janúar

27 jan.

Langar að byrja á því að óska elsku bestu stóru systir innilega til hamingju með afmælið í dag. 28 ára er snótin!

Annars er kominn þriðjudagur (fyrir ykkur sem eru ekki alveg með hlutina á hreinu) og það var langur skóladagur í dag. Byrjaði í lit og klipp í morgun, tók 2 konur. Svo eftir hádegi í iðnfræðina góðu. Þar var rætt allt frá klippiformum og að litafræði. Merkilegt hvað maður lærir ;)

Á morgun er ég svo að hugsa um að skella mér á æfingu um leið og ég vakna og svo í ljós. Svo þarf að ég hringja eða fara niður í fræðslusetur og ath hvernig “vinkonu” minni gengur að reikna út samninginn minn og gera nýja samninginn. Ég þarf svo líka að tala við hana í sambandi við syttingu og stúdentinn. Svo krossið fingur um að þetta allt gangi upp. Svo þarf ég að kaupa mér nýja dagbók. Fór í Eymundsson um daginn og þetta er djöfulli dýrt. Ég kannski tékka í Griffli hvort þetta kosti e-ð aðeins minna.

Á fimmtudaginn er svo herra tími og svo fer ég norður aftur á föstudagsmorgun. Við ætlum að hlaða bílinn á seinnipart laugardags og keyra svo suður á sunndag. Ég verð ótrúlega fegin þegar þetta verður búið. Ég viðurkenni líka að ég er bara pínu spennt. Ég held að það sé aðallega útaf því að þá verður þessi fjarbúð búin.

Ég held ég láti þetta duga í bili.

pakkipakkipakk!

24 jan.

Jæja.. þá er ég komin norður og byrjaði að pakka búslóðinni í gær. Ég keyrði norður á fimmtudag og hef aldrei verið jafn sperrt og hrædd allann tímann. Það var ógeðslega hvasst og svo blindbylur, skafrenningur og fleiri skemmtileg heit á heiðunum. En eftir að ég komst heil á húfi borðuðum við Helgi hjá mömmu.

Í gær kom mamma svo og við byrjuðum á að pakka eldhúsinu. Við ákváðum að taka bara allt nema það sem var óhreint í uppþvottavélinni og það sem var í ísskápnum. Af einhverri ástæðu áttum við Helgi pappadiska, glös og hnífapör uppí skáp, þannig að það var dregið fram og öllu gleri pakkað. Helgi var ekkert svakalga sáttur, en hann ákvað að vinna svo hann hafði ekkert um þetta að segja, hehe. Við mamma náðum svo að þrífa innréttinguna og ofninn, svo það leiðinlegasta er búið. Við pökkuðum svo aðeins úr skenkunum frammi og smádóti.
Við hjónin tókum svo geymsluna í dag. Fórum með 13 kassa í geymslu niður í Stefnu. Náðum svo að pakka restinni og koma því í almennilega kassa og endurraða. Erum með rúma 3 ruslapoka af rusli og dóti sem þarf að henda + 1 ruslapoki af fötum sem fara uppí Rauða Kross. Á morgun þurfum við bara að redda okkur nokkrum kössum í viðbót til að klára að pakka öllu. Þá er ekkert annað en að þrífa, hlaða bílinn, keyra draslinu suður og flytja það inn. Það gerist samt ekki fyrr en um næstu helgi. Ég viðurkenni það alvega að ég verð ekkert smá fegin þegar þetta er búið.

Annars erum við alveg búin að skemmta okkur ágætlega við að pakka og gera grín að því hvað við eigum mikið af dóti. Ég vil meina að allt sem er óþarfa dót og hefur safnast upp sé á Helga vegum, hann er hins vegar ekki eins sammála! ;) hehe.

Ég ætlaði bara að skrifa aðeins um gengi pökkunarinnar. Tók nokkrar myndir sem kannski fá að fljúga hingað inn við tækifæri.

Þangað til næst, megið þið alveg óska okkur góðs gengis í öllu þessu “skemmtilega” veseni. ;)

Skóli, vesen, æfing, ljós.

20 jan.

Það var laglega tekið á því í skólanum í dag. Þegar ég mætti beið mín kona sem átti tíma í klippingu og lit. Ég byrjaði á að klippa hana og litaði svo. Á meðan liturinn beið í henni, litaði ég aðra snöggvast. Henni fannst ég svo agalega snögg að þessu að hún átti ekki til orð yfir því. Svo þegar ég var búin að lita hana, skolaði ég þessa fyrri og kláraði að laga klippinguna og blása. Hún var reddí og heví flott. Þegar hún var svo farin þá klippti ég hina, var ekki lengi að því þar sem hún var með tiltölulega auðvelda klippingu. Blés hana og hún var klár. Þetta var ótrúlega skemmtilegur morgunn og ég var eldsnögg að þessu ;) hehe.
Eftir hádegi var svo tími hjá Gretu í Iðnfræði. Það eru eiginlega bara kjafta tímar. Reyndar erum við aðallega að spjalla um verklýsingar, sveinspróf, reglur, laun, samninga, aðferðir og fleira og fleira. Þetta eru ótrúlega góðir tímar og maður fær allt á hreint sem maður þarf að fá á hreint. Ég til dæmis komst að því að ég gæti fengið styttingu á samninginn minn út á það að ég er búin með stúdent. Greta þorði samt ekki að fullyrða það, hún vissi um svoleiðis dæmi, en ég þarf að athuga það betur. Ég vona rosalega að það hafist og það eykur þá líkurnar á að ég nái að taka sveinsprófið í vor. Svo allir að krossleggja fingur ;)

Við erum svo búin að skrifa undir leigusamninginn fyrir íbúðina í Asparholtinu. Í dag ætlaði ég svo laglega að koma manninum mínum á óvart og þinglýsa samningnum, án þess að hann myndi minna mig á það. Það gekk nú ekki betur en svo að þegar ég var komin á sýsla í Hfj. fékk ég að vita að það þarf að vera þinglýst umboðsvottorð fyrir Hannes og Þóru (við leigjum af þeim og pabbi hennar skrifaði ss. undir samninginn fyrir þeirra hönd, því þau eru bæði úti í Edinborg). Það þarf þá að byrja að græja það, svo þarf að afþinglýsa (ef það er orð) núverandi leigusamning. Þetta þýðir það að ég hringdi spæld í Helga til að segja honum þetta. Þar fór ánægjuplanið mitt um þúfur. En þetta vonandi verður græjað svo ég geti náð að þinglýsa næsta mánudag.

Þegar ég var svo búin í skólanum, fór ég heim og beint á æfingu. Tók ekkert smá á því og var þokkalega ánægð með sjálfa mig. Fór svo í ljós og slakaði vel á. Ég gerði svo heiðarlega tilraun til þess að sjóða MJÖG stór egg. Það heppnaðist ekki betur en svo en að þau voru hrá. Ég ákvað þá bara að sjóða þau aftur og ekkert gerðist. Vissuð þið það? Ég hélt að ef maður syði eggin 2var að þá myndu þau bara sjóðast betur. En nei, þau voru alveg jafn hrá og ógeðsleg, þannig að ég henti þeim. Sem betur fer átti ég 3 egg í viðbót sem ég ákvað að sjóða. Það tókst heldur ekki nógu vel því 2 egg voru með smá brot í skurninni, þannig að þegar suðan var að koma upp flaut smá eggjahvíta útum allt. Sem gerði það að verkum að eggin urðu töluvert meira en harðsoðin. Þau eru alveg borðanleg með slatta af vatni reyndar. ;) Ég í alvöru, vissi ekki að maður þyrfti próf í að sjóða egg. Hingað til hefur þetta alltaf gengið frekar vel, en þessi eggjabakki var greinilega e-ð skrítin. ;)

Nóg af eggjatali og kominn tími á svefn :D

-GN

Ágætis helgi að baki

18 jan.

Mamma og Daníel voru í bænum um helgina. Mamma var reyndar í skólanum fram á seinnipart á laugardag en kom svo í bæinn og við spókuðum okkur.

Á föstudagskvöldið skelltum við Daníel okkur í bíó á BedTime Stories með Adam Sandler. Ég get svo svarið það við hlógum nánast alla myndina. Hún kom mér mjög á óvart. Á laugardaginn klippti ég Daníel og við kíktum svo örlítið í Kringluna. Mamma rak okkur að skoða fermingarföt á drenginn, mér fannst ég nú ekki alveg hafa það sem þurfti til þess, en reyndi þó. Svo þegar mamma kom þá fórum við í Smáralindina og fundum þar fötin á hann í Zara Man. Ótrúlegt en satt, þá fundum við fötin þar. Við eiginlega fórum þangað inn til að geta sagt seinna: “við kítkum í Zöru og fundum ekkert!” hehe. En mestu skipti þó að Daníel var hæst ánægður með kaupin. ;)
Eftir Smáralindina brunuðm við svo upp í Grafarholt og hittum Helenu og Anný frænkur. Helena bauð uppá kaffi og skúffuköku, sem var bara gott. Svo fórum við á Eldsmiðjuna og borðuðum geggjaða pizzu og tilheyrandi. Brunuðum svo upp í Mosó til Binnu og Bjarka og sátum þar heillengi í gærkvöldi að spjalla. Það var rosa stuð.

Næstu helgi stefni ég svo að því að fara norður og byrja að pakka. Ég ætla að vona að ég nái að pakka sem flestu og þrífa sem mest, svo það verði minna að gera helgina sem við flytjum.

Á morgun ætla ég svo að reyna að græja leigusamninginn okkar. Ég fer ekki í skólann fyrr en kl. 13 svo ég ætti vonandi að geta skrifað undir hann og fá undirskrift frá tengdapabba Hannesar. En við sjáum hvernig það fer.

Þangað til ég hef meira að segja – Later!