Var að setja inn myndir.. svosem ekki nýjar, en fattaði að ég átti alltaf eftir að setja þær inn :D
Klippiferð með skólanum á Selfoss í febrúar
Var að setja inn myndir.. svosem ekki nýjar, en fattaði að ég átti alltaf eftir að setja þær inn :D
Klippiferð með skólanum á Selfoss í febrúar
það er lítið að gerast þessa dagana nema undirbúningur fyrir próf, redda módelum fyrir tíma og próf, hanna galagreiðslu, klára verklýsingar og binda saman alla lausa enda sem koma að skólanum.
það eru bara 3 vikur eftir af skólanum, rétt rúmar 5 vikur í Elsu, Krissa og Alís, rúmar 6 vikur í jólin og rúmar 7 vikur í áramótin
þetta allt heldur mér gangandi þessa dagana.. við Helgi fórum í Ikea í dag og keyptum jólapappír og skraut á jólapakkana fyrir jólin.. það var æði! annað í Ikea var ekki spennandi, því miður..
Helgi kom óvænt suður á miðvikudaginn í síðustu viku og var yndislegt að fá hann.. alveg bjargaði helginni! takk fyrir helgina ástin mín!
læt þetta duga í bili!
rættist úr síðustu færslu.. það sem ég stóð við var:
* galatíminn
* vinnan
* hitta mömmu
* sofa út
* og bjóða mér í mat til Sandgerðis í kvöld :D
en í dag er ég samt búin að gera:
* ryksuga herbergið mitt
* breyta aðeins í því líka
* skipta á rúminu
* setja í þvottavél
* og að sjálfsögðu sofa út
annars er ég bara í ágætis fíling hérna.. er að hlusta á Kings of Leon, sem er meira en drullugóð hljómsveit! er líka búin að vera að hlusta á SecondHand Serenade.. þeir eru líka mega góðir!
svo sakna Helga míns, en það eru náttúrulega engar fréttir fyrir ykkur að lesa.. heh..
núna eru bara 4 skólavikur eftir.. jesús hvað það styttist í próf! er búin að finna mér permanent módel í próf og Helgi ætlar að vera herramódel hjá mér.. mig vantar bara í dömu klippingu og litun.. er einhver sem býður sig fram? einu skilyrðin eru að ég þarf að dekkja um 2 litatóna.. endilega látið mig vita stelpur :D
Svo vantar mig líka ykkur strákar til að koma næstu 4 mánudaga í klippingu.. frítt! :D bjallið í mig ;)
en ég ætla að fara og græja mig og koma mér til Sandgerðis ;)
á morgun ætla ég að:
* fara í galatíma í fyrramálið og lita dúkkuna mína
* vinna eftir skóla
* hitta Bryndísi frænku eftir vinnu
* fara svo að sofa
á föstudaginn ætla ég að:
* fara í vinnuna kl. 9
* vinna til kl. 18
* fara heim eftir vinnu og fá mér að borða
* er ekki búin að ákveða meira
á laugardaginn ætla ég að:
* sofa út
* kannski renna til keflavíkur og hitta mömmu
* kem jafnvel við í Vogunum hjá Hönnu vinkonu (á reyndar eftir að tala við hana)
* ef það gengur upp þá væntanlega gisti ég þar
á sunnudaginn ætla ég að:
* líklega að sofa út
* borða eitthvað
* kannski hitta mömmu áður en hún fer
* bjóða mér í mat til Sandgerðis
* rúlla svo heim í borgina
það lítur allt út fyrir það að ég verði á Reykjanesinu um helgina!
núna er ég farin að telja niður í vikum, þangað til ég kemst heim..
við hjónin vorum einmitt að klára að bóka flug fyrir prófin hjá mér og svona.. fengum þokkaleg verð..
annars er allt á kafi í snjó á AK og vildi svo meira en óska þess að það væri svoleiðis í RVK líka.. mér finnst kuldinn ekki þess virði nema snjórinn fylgi. Stubba þurfti nánast að synda út í garð, því það var svo mikill snjór, og hún var að fíla það!
það var yndislegt heima um helgina, eins og alltaf. ég tók smá æði og þvoði allann þvott á heimilinu, þreif baðherbergið og Helgi fékk heiðurinn á að ryksuga.
Helga mín, Binni og Dagur kíktu á okkur í dag og ég klippti Helgu.. Dagur er alltaf jafn hress og svoleiðis lék við Stubbu að það hálfa hefði verið nóg.. Helga fór svo aðeins sætari heim, en þegar hún kom :D heh.. takk fyrir daginn elskurnar, við gerum þetta alltof sjaldan!
mamma og pabbi borguðu fyrir mig flugið heim á fimmtudaginn. takk æðislega fyrir það! og svo var matur á föstudaginn hjá þeim.. naut og herlegheit, bara gott!
á laugardaginn var svo skírn hjá Stellu og Geir. þau skírðu stubbinn Kristján Þór.. fallegt nafn á glæsilegum dreng. það var glæsilegt veisluborð og frábært að hitta þau..
en þetta er gott í bili.. ætla að horfa á despó!
« fyrri síða | næsta síða »